|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|
24.06.2007 05:51:46 / aron_s
Framhald á www.123.is/aronsmari
»
13.06.2007 21:19:25 / aron_s
hér er loksins svarið við því...
Þetta er síðasta færslan mín á þessari síðu,
ég er búinn að opna á nýjum og betri stað www.123.is/aronsmari
allir að tékka þangað.
»
13.06.2007 00:03:12 / aron_s
Svona er þetta búið að líta út hjá mér undanfarið. Alltaf verið
að aflýsa flugum, ég ætti að vera langt kominn með 2 hreyfla
réttindin en það er oftar búið að fresta flugi heldur en ég hef
flogið. 4 flug og búið að fresta 5. Tvisvar hefur verið frestað
útaf vélarnar hafa bilað eða dottið á skoðun og 3 skipti útaf
veðri. Þetta er bara farið að hljóma eins og á íslandi "góðir
farþegar, því miður er flugi til Akureyrar aflýst útaf veðri"..
Nema hérna eru það hitabeltis stormar og þrumuveður sem klúðrar
þessu hérna en ekki rok, ísing og lélegt skyggni eins og heima.
Í gær fengum við heldur betur að kenna á því, það kom eitt
svakalegasta þrumuveður sem ég hef séð. Rosalegar eldingar og
háfaði og síðan var rigningin mögnuð. Þetta ský sem olli þessu var
reyndar mjög saklaust en síðan bara sprakk það með þvílíkum látum.
Karen fyrrverandi kennarinn minn var að fljúga þar sem þetta var
ekkert í veðurspánum og sást ekki á radar og hún varð að lenda á
Flagler ásamt fleirri vélum því þetta kom svo óvænt. Síðan þegar
veðrið var hálfnað var búið að gefa út viðvörun og þetta hélt bara
áfram að vaxa næstu klukkutímana. Til að gera ykkur smá grein fyrir
stærðinni á þessu skýi að þá eru svona bólstra ský alveg til á
íslandi nema þau ná yfirleitt ekki uppfyrir 20.000 fetin, en þetta
ský teygði sig alveg upp í 53.000 fet eða um 17km hæð eða langt
fyrir ofan farflugs hæð á flestum farþegaþotum og náði yfir um 20
KM svæði. Það voru fleirri svona ský bara aðeins minni um allt
Central Florida og olli meðal annars töfum á flugi á Orlando
International. Síðan í dag kom þrumuveður 20 mín áður en ég átti að
fara í loftið þannig það varð ekkert úr þessu flugi. Ég var að gera
mér vonir um að geta klára fyrsta stig í þessu um helgina en
kennarinn hefur ekki tíma fyrir mig fyrr en á fimmtudaginn þannig
ég næ því ekki. ég á 2 flug eftir í fyrsta stigs prófið, síðan 2
flug eftir það og þá fer ég í 2 stigs prófið og beint í lokaprófið
eftir það.. þannig þetta er allt að klárast. bara veltur á því hvað
kennarinn getur eytt miklum tíma í mig.

»
09.06.2007 02:43:55 / aron_s

Það er heldur betur kominn tími til að skíta aðeins á Paris
Hilton. Þessi stelpa er ekkert smá rugluð, heldur að pabbi sinn
geti bjargað sér eins og alltaf úr öllum drullupollum sem hún hefur
grafið undir sjálfa sig. Pæliði í þessu, rétt áður en hún á að fara
í fangelsið fyrir þetta brot á skilorði hætti hún að borða til að
láta vorkenna sér. Dómurinn var lækkaður úr 49 dögum (sem er bara
allt of vægur dómur) niður í 23. Venjulegur bandaríkjamaður hafi
fengið mikið þyngri dóm. Eftir 3 daga í fangelsinu er henni slept
vegna "læknisráði" og engin skýring gefin á því og fékk hún
stofufangelsi í staðin. Fólk var að sjálfsögðu ekki ánægt með þetta
og fylltust pósthólf og tölvupóstföng hjá Californiu stjórninni af
kvörtunum útaf þessu. Og þá var hún send aftur í réttarsalinn og
þaðan beint í grjótið aftur há skælandi og núna þarf hún að dúsa
alla þessa 49 daga sem voru dæmdir upphaflega. Þarna sérðu druslan
þín, stundum er bara betra að halda kjafti og vera ekki alltaf með
þetta helvítis væl þegar þú kemur þér í skít. Það verður samt
fróðlegt að sjá hvað gerist næstu daga.. ef hún hættir aftur að éta
til að láta hleypa sér út þá skora ég á fangelsismálastofnunina
bara að gefa henni mæjones beint í æð. Ég vorkenni henni nákvæmlega
ekki rassgat og vill frekar sjá hana í töluvert lengri tíma í
steininum, það á ekkert að tríta þetta ríka fólk eitthvað betur því
þau eru að brjóta nákvæmlega sömu lögin og hinir.
Og svona til gamans þá er hérna gott spúff úr South Park þeim
yndislega þætti.. og að sjálfsögðu fer Paris Hilton með
aðalhlutverkið í þessu spúffi.
»
07.06.2007 00:15:24 / aron_s
Þetta var dagur sem mig langar ekkert að upplifa aftur á næstunni.
Dagurinn einkenndist af spennu, kvíða, stressi og sjokki útaf einu
atviki. Málið er að flugmaður sem ég þekki lenti í leiðindar atviki
rétt fyrir hádegið í dag. Þurfti að naðulenda vél sem hann var að
fljúga á einhverjum gras bletti eftir tæplega þriggja og hálfs tíma
flug. Enginn slasaðist og vélin kom alveg heil úr lendingunni sem
gekk mjög vel eftir að mótorinn hafi misst nánast allt afl. Þetta
var síðan blásið upp í fréttunum og sagt að flugvél hafi brotlent
þarna en auðvitað átti engin brotlending sér stað. Það lítur út
fyrir að annaðhvort bensínleki hafi ollið þessu eða stífla frá
hægri bensíntanki vélarinnar, því við nánari skoðun eftir
lendinguna kom í ljós að vinstri tankurinn var alveg tómur en
eitthvað bensín hafi verið eftir í hægri tankinum. Ætla ekkert
meira að tjá mig um þetta mál í bili en kem með nánari útskýringar
þegar þetta skýrist betur....
»
03.06.2007 21:22:33 / aron_s
Það gerðist ekkert að viti þessa helgina. Ég og Þráinn kíktum á
MaiTai á föstudaginn og það var bara eins og venjulega. Barry vinur
okkar sem núna er kominn til Norður Carolinu varð til þess að ég
þurfti að aflýsa 2 flugum og samtals hefur þessu flugi verið
frestað þrisvar. ég átti fyrst að fljúga á Fimmtudags kvöld en
þegar ég mætti þá voru 2 vélar bilaðar, 2 í loftinu og ég átti að
fá eina að þeim 2 sem voru eftir, en önnur þeirra datt á skoðun og
hin var með eitthvað bilaðan startara og önnur vacum pumpan biluð
þannig það var ekki heldur hægt að fljúga henni. Síðan á
föstudaginn var aflýst útaf veðri og Laugardaginn var alveg hægt að
fljúga en þegar ég átti að fara í loftið hrundi skýjahæðin niður
þannig við gátum ekki farið í þá hæð sem við þurfum til að gera það
sem við áttum að gera í þessu flugi. Núna er ég bara að bíða
rólegur fram á þriðjudag til að reyna þetta flug einu sinni enn.
Kennarinn er nebblega í annari vinnu á sunnudögum og síðan er hann
í fríi á mánudögum.
Sólin er aftur farin að skína hérna og eftir þessa rigningu um
helgina er rakinn virkilega farinn að kicka inn, maður svitnar bara
við að labba út á bílastæði. Ströndin er klárlega málið á morgun,
sól 30 stiga hiti á morgun og ekkert annað hægt að gera
»
02.06.2007 06:33:42 / aron_s
Það eru ótrúlegir hlutir að gerast hérna í veðrinu. Þessi litla
lægð sem myndaðist við strendur Cubu í gær er búin að vaxa svo
mikið og búin að breyta um karakter og orðin af Tropical Stormi.
Þetta er reyndar gott mál þar sem það er bústi við því að þessi
stormur muni missa kraftinn áður en hann nær landi um kl 10 á
laugardags morgun eða kl 14:00 á íslenskum tíma. Þetta er s.s.
fyrsti Atlantshafs stormurinn á þessu tímabili sem fær nafn og er
hann heldur betur í fyrri kantinum því yfirleitt er það ekki að
gerast fyrr en í krngum 10 júlí. og síðan næsti stormur um mánuði
seinna eða 8 ágúst. Það sem er gott við að þetta verður náði að
breytast í Tropical storm er að núna fáum við helling af langþráðri
rigningu til að slökkva alla þessa sinu bruna og það fylgir þessu
ekkert ofsaverður eins og þrumuveður sem getur virkað eins og góð
eldspýta fyrir sinubrunana, nema það er verið að vara við
hugsanlegum Tornados svona í morgunsárið en ekkert nálægt hérna.
Stormurinn mun ná landi rétt fyrir norðan Tampa og halda áfram
norð-norð austur og fara rétt norður fyrir daytona og þegar hann
nær okkur á vindhraðinn að vera kominn niður í um 40 mílur. Hámarks
vindur í þessum stormi var ekki nema um 50 mílur þannig þetta er
bara eins og íslensk lægð nema bara með mikið meiri rigningu og
hlýjindum. Veðurspáin fyrir laugardaginn er bara pínu rok og
hellings rigning eða 100% líkur á rigningu og svo háa tölu hef ég
ekki séð áður í veðurspám hérna.. 80% er sú hæsta fram að þessu og
núna er útilokað að þetta met verði bætt  síðan heldur þessi
stormur áfram upp eftir austurströndinni og mun fljótlega aftur
breytast í Lægð og halda þaðan alla leið upp til Boston. Veðurspáin
fyrir næstu vikuna eftir laugardaginn er einfaldlega SÓL, 31-32
STIGA HITI OG HÆGVIÐRI OG UM 10-20% LÍKUR Á RIGNINGU, og það á
aðeins við um seinnipart dags eins og gerist nánast daglega hérna
yfir sumarmánuðina... Núna er síðan bara málið að bíða spenntur
eftir næsta stormi og sjá hvort fleirri met verða slegin..
»
31.05.2007 20:46:13 / aron_s
Þá er loksins komið að hurricane tímabilinu. Það byrjar á morgun
en nú þegar eru komnir tveir stormar sem er búið að gefa nöfn.
Þessir stormar eru staðsettir rétt vestur af mexico þannig þeir
munu ekki hafa nein áhrif hérna á Florida. Það er búið að spá að
það koma 16 stormar í viðbót sem fá nöfn, 12 af þeim ná að verða
hurricanes og 5 af þeim Major Hurricanes eða 3-5 stigs stormar sem
hafa vindhraða frá 111 mílur á klst og uppúr, 5 stiginu er náð
þegar vindhraði er kominn upp í 155 mílur á klst eða 249km/h eða
69.1m/s. Allar líkur benda á það að við munum fá a.m.k 1 fellibyl
hérna á Florida, þar sem það er spáð að það sé um 20% líkur á að 5
fellibylir nái landi við Florida og ef maður leggur þetta saman þá
eru 100% líkur á að fá 1 kvikindi. Þegar veðurspárnar eru farnar að
spá því að fellibilur muni hafa mikil áhrif eða fara yfir daytona
þá eru flugkennarar og atvinnuflugmenn hérna í skólanum beðnir um
að taka flugvélaflotann og fljúga þeim bara einhvert þar sem
fellibylurinn mun ekki ná þeim. Þetta er bara gert til að koma í
veg fyrir að flugvélaflotinn skemmist og að sjálfsögðu fáum við
þetta frítt og allur kostnaður við þessar ferðir er greiddur af
skólanum.. Þetta er örugglega mjög skemmtilegt að fara í svona.. fá
nokkra daga frí einhverstaðar þar sem maður hefur ekki komið áður á
kostnað skólans og ef ég þekki kappann rétt þá verður örugglega
ekki eytt mörgum tímum edrú þessa daga.. Og síðan þeir sem verða
eftir hér á Daytona halda síðan svona Hurricane party þar sem það
er ekki hægt að gera neitt betra en að vera fullur og skemmta sér í
svona veðri.

Þetta fellibilja tímatil stimplar sig heldur betur inn hérna.
Það eru búnir að vera rosalegir þurkar hénra og frekar hvasst
síðustu 2 vikurnar oná það. Þannig það eru búnir að vera stöðugir
sinueldar hérna í allt vor og bara alls engin rigning þannig að
þúsundir hektarar hafa brunnið og nokkur hús skemmst útaf þessu. En
núna er loksins komin lægð rétt á milli Cubu og Cancun Mexico sem
er með svakalega úrkomu og er þetta kerfi að stefna til okkar með
langþráða rigningu. Þetta kerfi er enþá bara svona "venjulegt"
kerfi og það fer alveg eftir því hvaða fréttastofu maður horfir á
hvort þeir segja að þetta muni þróast út í Tropical lægð eða
haldast venjuleg. Munurinn á venjulegri lægð og Tropical lægt er að
venjulega lægðin er líklegri til að búa til hættulegra veður s.s.
stór þrumuveður og eldingar á meðan Tropical lægðin er nánast alveg
laus við það en skilar töluvert meiri rigningu án þess að vera með
nein læti. Hérna er síðan smá tónlistar video sem var gert af
einhverjum spössum um Hurricane Andrew sem fór yfir Miami fyrir
nokkrum árum.
Næturflug hjá mér í kvöld og vonandi eitthvað meira á
föstudag og laugardag og síðan er planið á sunnudaginn að kíkja út
á bát með nokkrum úr skólanum að veiða og drekka bjór.
»
30.05.2007 21:12:43 / aron_s
Núna hefur maður heldur betur efni á að vera soldið cocky.. Var
í öðru Senecu fluginu í dag og eftir flugið hoppaði kennarinn alveg
af gleði. Hann sagði orðrétt "you were fantastic last time, but
much better today". Flugið í dag var bara fínt.. tókum smá
manuveringar eins og krappar beygjur, hægflug og ofris. Kennarinn
var bara sáttur eftir allar fyrstu tilraunir þannig við eyddum ekki
meiri tíma í það og fórum bara í lendingar á Flagler. Það gekk líka
mjög vel þannig í seinna flugtakinu þaðan tók ég stuttbrautar
flugtak og það fannst mér áhugavert. Núna þegar maður er kominn með
svona öfluga vél, við keyrum vélina alveg út í endann á brautinni,
stöndum síðan á bremsunum og keyrum mótorana upp í um 65% afl,
tékkum á mælum ör snöggt og síðan um leið og við sleppum bremsunum
er gefið fullt afl þannig véli æðir af stað... ekki svipuð
tilfinning og að sitja í Fokkernum. Og talandi um það þá fynnst mér
þessi vél ekki ósvipaður "karakter" og Fokkerinn. Ríkur soldið
harkalega af stað, stekkur hálfpartinn af brautinni þegar togað er
í stýrin, auðvitað pínu vinstrisækin, síðan er aðflugið mjög svipað
líka, það þarf að fljúga það með nefið aðeins niður og
loftskrúfurnar á háum snúningi, síðan er aflið tekið rólega af
þegar við erum rétt að ná endanum á brautinni og síðan er togað
nefið upp þegar vélin er komin oní "ground effect" eða mjög nálægt
brautinni og nefinu bara haldið uppi þangað til að vélin snertir
eða nákvæmlega eins og á Fokkernum góða.. Loka lendingin tókst best
þar sem vindurinn á daytona var aðeins betri en á Flagler, Mjög
mjúk lending og á meðan við vorum í loka aðflugi kallaði vél sig
inn á eftir okkur með einhver vandræði í lendingar búnaðinum eða
hjólunum og flaug síðan yfir brautina á eftir okkur, ég gat samt
ekki betur séð en að öll dekkin væru niðri og í eðlilegri stöðu,
slökkviliðið var samt komið út á braut þegar við lentum útaf
vélinni fyrir aftan okkur en ég veit ekki hvernig þetta endaði, ég
held að þeir hafi ætlað að fljúga eitthvað áfram til að létta
vélina til öryggis því þeir voru með mikið eldsneyti um borð.
Í gær tókum við ground tíma og vorum að fara yfir kerfin í
vélinni og skilgreiningar á hinu og þessu. Það eru töluvert fleirri
factorar sem þarf að hafa í huga þegar maður er kominn með 2
hreyfla vél. Síðan fyrir flugið í dag tókum við annan ground tíma
og við náðum að klára það efni á mjög stuttum tíma þannig ég er
þegar byrjaður að undirskjóta viðmiðunar tíma. Eftir 3 ground tíma
er ég búinn að græða klukkutíma, s.s. búinn að vera 3 tíma í staðin
fyrir 4. Og sömuleiðis með flugið, búinn að undirskjóta það líka um
1.1 tíma eða hef bara þurft að fljúga 2.9 tíma í staðin fyrir 4 og
er þar af leiðandi búinn að spara mér um 300 dollara á 2 flugum.
Kennarinn segir líka að ég eigi eftir að fara mjög hratt og
auðveldlega í gegnum þetta þar sem það er ekkert að vefjast fyrir
mér og ég höndla vélina bara mjög vel. Næsta flug er á föstudaginn
og það er næturflug, kennarinn bað mig vinsamlegast um að koma með
vasaljós því það væru öll ljós inní vélinni nánast biluð 
Þráinn var eitthvað að væla yfir því hvað væri ömurlegt að
fljúga hérna, hann var ekki alveg sáttur með hvað er mikið af
sinueldum hérna í nágreninu sem skemmir allt skyggni þannig hann
komst ekki neitt. Skil hann samt alveg ágætlega með þetta því hann
er að safna tímum hérna og reynir að fljúga um 10 tíma á dag og ég
mundi aldrei nenna að fljúga 10 tíma á einum degi hérna í þessu
svæði því það er nákvæmlega ekkert að sjá, hellings traffík og
pirraðir flugumferðastjórar..
»
26.05.2007 22:11:16 / aron_s
Útaf einhverjum ástæðum sem ég fékk ekki að vita var mér
úthlutað nýjum kennara í staðin fyrir Djuri, helvítis vonbrygði því
Djuri er hrikalega skemmtilegur gaur. Baradaran heitir nýji
kennarin og hann er einnig prófdómari. Hann er bara fínn og alveg
ágætt að fljúga með honum. Fyrsta Senecu flugið var í morgun og
gekk það svona glimrandi vel. Þetta var bara frekar stutt
kynningarflug þar sem ég hef ekki flogið svona vél áður og auðvitað
er þetta 2 hreyfla vél. Rosalegur munur að vera kominn á svona vél,
allt að gerast mikið hraðar og meira að gera. Hérna er smá
samanburður á milli Piper Seneca og Cessna Skyhawk
Hlutur:
Seneca: Skyhawk:
Hámarksþyngd 4200lbs 2550lbs
Mótor
2x200 HP 180 HP
Klifurgeta
1400fpm 750fpm
Farflugshraði 160KTS 105KTS
Besti klifurhraði 105mph 74KTS
Flugtakshraði 85mph 55KTS
Aðflugshraði 105mph 65KTS
Svona er þetta.. alveg frábært að vera kominn á svona kraftmikla
vél, 400 hestöfl. Maður finnur mikið meira fyrir hröðuninni í
flugtaksbruninu og síðan eru allir hraðar mikið hærri. Svona til að
bera saman þá hefur Senecan mjög svipaðan aðflugshraða og Fokker 50
sem Flugfélag Íslands notar.. Flugið sjálft var bara mjög gott,
fínt veður og ég var ekki í neinum vandræðum að höndla vélina. Við
tókum 2 lendingar á Flagler áður en við fórum aftur til Daytona og
þegar við erum að keyra vélina inn á stæði þá sagði kennarinn að ég
hafi heillað hann með minni færni og hæfileikum. Hann hafi aldrei
séð mann höndla þessa vél svona vel í fyrsta fluginu.
Þessi vél er ekki hönnuð sem kennslu eða þjálfunarvél heldur sem
Charter eða svona leiguflugs vél og er þar af leiðandi erfið fyrir
menn með litla reynslu. Ég lít á þetta sem jákvæðan hlut því sagan
segir að ef menn höndla þessa vél þá geta menn flogið öllum 2
hreyfla vélum því þessi er í erfiðari kantinum.
Jæja. nóg komið af grobbi í bili, næsta flug er áætlað á
þriðjudaginn þar sem það er enn ein langa fríhelgin hérna í USA,
Memorial day er á mánudaginn og allir á flakki um helgina. Held að
málið sé bara að kíkja til Orlando eða eitthvað um
helgina
»
24.05.2007 02:37:03 / aron_s
Þá er enn einu seasoninu af American Idol lokið og í þetta
skiptið var það Jordin sem náði að heilla kanann uppúr skónum.
Keppnin var æsi spennandi og show-ið hrikalega flott.

Mér fannst þessi lokaþáttur snúast mest um alla aðra heldur en
þessa 2 keppendur sem eftir voru og hellingur af tónlistar atriðum
voru flutt að hinum ýmsu flytjendum. Meðal flytjanda voru Idolin
Kelly Clarkson, Ruben, Carrie Underwood, Taylor Hicks ásamt þeim
sem komust lengst í keppninni í ár, einnig tóku gamlir refir lagið
eins og bette midler og einhverjir sem ég hef ekki hugmynd um hvað
heita... Mér fannst Kelly Clarkson samt standa uppúr þar sem hún
var með skemmtilegasta lagið og síðan er hún líka endalaust góð á
sviðinu.
Ég fylgdist ekkert sérstakelga mikið með þessu seasoni enda
fannst mér ekki neinir keppendur standa uppúr eins og undanfarin ár
og útaf ótrúlegum fjölda af heitapotts ferðum sem eru yfirleitt
farnar á þeim tíma sem American Idol er í sjónvarpinu.
Til hamingju Jordin með sigurinn og þið sem eruð að drepast úr
spenningi yfir þessu heima á klakanum, vinsamlegast sendið
kvartanir og drullu fyrir að skella úrslitunum hingað til Everts og
linkurinn á hans síðu er hér vinstra megin á síðunni...
Ég ætla einnig að lýsa yfir vonbrygðum mínum með leik
Liverpool í meistaradeildinni. Að tapa 2-1 fyrir AC Milan er engin
skömm, en að tapa fyrir þeim með svona leik er bara hrikalegt.
Þetta var bara leiðindar leikur frá upphafi til enda, allt of
mikill varnarbolti hjá báðum liðum og það vita það allir að Milan
menn eru bara of hættulegir í skyndisóknunum sínum. Þegar Milan
menn komust yfir var ég farinn að sjá fyrir mér seinni hálfleik
eins og fyrir 2 árum en neiiii.. það var ekki að gerast. Ingólfur,
Eyþór, Habba, Rúnni ofl.. ykkar lið skeit bara virkilega uppá bak,
ekkert illa meint frá mér, ég gaf ykkur allan þann stuðning sem ég
gat, sat s.s. á brókinni með bjór fyrir framan sjónvarpið að horfa
á leikinn..
»
21.05.2007 18:43:30 / aron_s
Það var drullu fjör um helgina. Félagarnir í Wired voru að spila
á MaiTai og stóðu þeir sig með einstakri príði eins og alltaf. Ég
hef verið að tala soldið um þetta band enda eru þeir með bestu
tónlistina af öllum cover böndunum hérna og síðan eru þeir bara
endalaust góðir. Ég fór bæði föstudag og laugardag og á
laugardeginum var troð fullt á staðnum. Ég held að þetta hafi verið
í fyrsta skiptið sem kvenfólk var í áberandi meirihluta, sem er
bara besta mál.
Næstu 2-3 mánuðir munu líta nokkurnvegin svona út hjá mér. Læra,
fljúga, éta, sofa, ræktin, fótbolti. Málið er að ég er að byrja á
verklega fjölhreyfla og atvinnunáminu og ætla mér að vera búinn með
það í lok júlí. síðan er ég að byrja aftur í ræktinni á fullu og
mæti til einkaþjálfarans 3svar í viku, og síðan er fótbolti hjá
okkur í skólanum allavega einu sinni í viku.
Ég er líka búinn að fá nýjan kennara og það er enginn annar en
Djuri sjálfur. Hann er besti vinur Karenar sem var að kennar mér og
hann er hrikalega skemmtilegur vitleysingur.. alltaf með einhver
fíbblalæti og gaman.. og eins og hann sagði að það ætti örugglega
eftir að vera mjög áhugavert fyrir okkur að fljúga saman. Hann
þykist geta klárað með mig fjölhreyfla réttindin á 2 vikum og ef
það gengur upp þá er það ekkert nema tær snilld.
Hér er síðan mynd af vél eins og ég er að fara að fljúga.. Piper
Seneca eða PA-34

Og svona til gamans ætla ég að sýna ykkur video frá Embry Riddle
sem er flug háskólinn rétt hinumegin á vellinum á Daytona og þarna
sést klárlega hvað menn eru að taka náminu alvarlega

»
18.05.2007 18:43:08 / aron_s

Kíkti á fyrsta hafnarboltaleikinn minn á fimmtudaginn. Þetta var
leikur í b-deildinni eða eitthvað.. allavega þá var þetta
heimaliðið Daytona Cubs sem er eigilega varalið Chicago Cubs, og
þeir voru að spila á móti einhverjum plebbum. Þetta var bara
ótrúlega skemmtilegt, ekki það að ég hafi gaman af leiknum sjálfum
heldur er bara svo mikið fjör í fólkinu sem mætir til að horfa á.
Þarna var fólk á öllum aldri, alveg frá pínu litlum börnum með
mömmu og pabba upp í afa og ömmu og allt þar á milli. Mikið af
pörum og vinum sem mæta á svona leiki. Það var alltaf eitthvað að
gerast á milli ramma í leiknum. Lukkudýrið að skemmta krökkunum og
hinar ýmsu keppnir fyrir litlu krílin. Fólk fór að dansa
fugladansinn og bara gera sig af fíbblum og allir virtust bara hafa
gaman að því. Þetta er klárlega eitthvað sem ég ætla að gera að
föstum lið. Á fimmtudögum eða Thirsty Thursday er boðið uppá
risabjór á 3 dollara, ásamt því að það er hægt að kaupa allskonar
skyndibita eins og pulsur, hamborgara, kjúkling og pizzur. Ég rakst
alveg á fólk sem ég þekki og þetta er bara klárlega svona amerískur
siður að kíkja á svona leiki.
Y.M.C.A
»
15.05.2007 15:47:57 / aron_s
Ég vaknaði upp við góðan draum. Inga Rúna var að hringja og
vekja mig til að draga mig út í hádegismat.. Djöfull er gott að
bestu vinir mans þekkja mann svona vel. Hún er með þetta allt á
hreinu, veit alveg nákvæmlega hvað ég hugsa um þegar ég sef fram að
hádegi, og það er matur. Við kíktum á stælinn í skipholtinu og
pöntuðum einn feitann og spjölluðum um nýlega liðna atburði. Eftir
matinn hafði ég rétt um hálftíma til að pakka niður í tösku áður en
þráinn kom og sótti mig.
Það var nú meira ruglið í flugstöðinni í gær. Ég og Þráinn vorum
auðvitað á leiðinni til Orlando og erum að rölta út í nýju byggingu
þegar gjörsamlega allt rafmagn fór af flugstöðinni. Við fengum
okkur bara sæti í rólegheitunum með ís kaldan Thule. Eftir u.þ.b.
30 mín af rafmagnsleysinu kom það aftur á og allar brunabjöllur
fóru í gang og þar sem var verið að hleypa fólki inn í
ameríkuvélarnar tók fólk uppá það ráð að hlaupa út um neyðarútganga
og út á flughlaðið og sat þar bara.. En eins og vanalega sátu allir
íslendingarnir inni og héldu áfram að sötra sinn bjór eða hvað sem
þeir voru að gera.. enda var síðan enginn eldur heldur var þetta
bara eitthvað rugl í rafmagninu... Þetta olli 20 mín seinkun á
fluginu okkar en samt lentum við langt á undan áætlun því flugið
var ekki nema tæpir 7 tímar í staðin fyrir venjulegu 8 tímana.
Flugstjórinn var enginn annar en Einar Dagbjartsson grindvíkingur.
Þegar við gengum um borð í vélina voru nokkrir kassar af íslensku
flöskuvatni upp við vélina og fékk fólk að fá sér með í vélina eins
og það vildi og við innganginn var boðið uppá sjálfsafgreiðslu á
dagblöðunum. Eitthvað held ég að þetta hafi með það að gera að
IcelandAir eru búnir að fækka úr 5 niður í 4 flugfreyjur í ameríku
flugunum og þá gera þær þetta svona í staðin til að minnka við sig
vinnuna í loftinu. Einar stóð sig bara helvíti vel í fluginu en það
sem vakti áhuga hjá mér var lendingin í Sanford en þá var ekki
notað "reverse" á hreyflunum til að bremsa vélina heldur notaði
hann bara hjólabremsurnar og lét vélina rúlla alla leið út í enda á
brautinni.. Ég get ekki ýmindað mér ástæðu fyrir þessu en maður
veit aldrei hvað honum Einari dettur í hug Evert sótti okkur
síðan á völlinn og eftir komuna til Daytona var að sjálfsögðu
skellt sér á langþráðan subway.
Í dag er ég bara að vinna í pappírsmálum og ganga frá öllu svo
ég geti byrjað að fljúga 2 hreyfla vélunum. Og síðan þarf ég líka
að sækja nýja skírteinið mitt með blindflugs árituninni og ég fæ
líka svona ekta amerískt diploma tær snilld.. Og til að halda
uppá þetta allt saman (íslandsferðin klárlega ekki nógu löng til að
halda uppá þetta) ætla ég að skella mér á Tiki Barinn okkar seinna
í dag og fara á "Heimsins Besta" í kvöldmat.
Ætla einnig að minna á skoðanakönnunina sem er hérna hægra megin
á síðunni.. allir að taka þátt..
»
13.05.2007 22:29:34 / aron_s
Hríseyjarævtintýrið tókst bara hrikalega vel. Flugið gott í góðu
veðri. Habban sótti mig á völlinn og bauð uppá bílferð í bónus og
þaðan út í hríseyjarferju. 15 mín sigling var síðan loka
spretturinn í ferðalaginu til eyjunnar. Stórt kvöld auðvitað útaf
eurovision og auðvitað kosningunum, Við hlustuðum á flest lögin og
síðan var restin af stigagjöfinni látin rúlla á MUTE við
undurfagran undirleik þerra félaga Slash og Axl Rose úr Guns ´N
Roses. Ég hitti nýtt og ekki svo nýtt en áhugavert fólk þarna og
sátum við á drykkju þangað til ákveðið var að skella sér á pöbbann
í meiri drykkju og síðan enduðum við í enþá meiri drykkju heima hjá
stelpunum aftur. Nóttin er ung og var ég að sofna svona um kl 7 og
um hálftíma seinna var ég vakinn af ungri stúlku að leita af mömmu
sinni og innan við hálftíma eftir það voru þær orðnar tvær trítil
óðar stúlkur sem fylltu rúmið mitt af dóti með viðeigandi hoppum og
látum. Þannig gekk þetta fram að hádegi og náði ég ekki að sofna
neitt og ákvað því að fara í sturtu allur út ataður í barnaslefi.
Dagurinn fór bara í bið og að reyna halla augunum þegar tækifæri
gafst og á endanum skelltu ég, habba og maggi okkur til Akureyrar
og tróðum okkur út af mat á Greifanum. Síðan var tekinn smá rúntur
á kantinn og síðan þurfti ég að skella mér í flug til Reykjavíkur
aftur. Þannig núna sit ég hér og blogga eftir um 33 tíma
vöku/drykkju/þynnku..Virkilega gaman að sjá höbbu aftur eftir
nokkra mánaða bið og nú tekur bara við meiri nokkra mánaða bið.

Núna er ég búinn að venjast þessum löngu flugum hérna á milli
keflavíkur og Orlando og tóku því þessi flug til Akureyrar bara
enga stund.. Fannst ég varla vera kominn í loftið þegar við lentum.
Og svona uppá gamanið bíður eftir mér u.þ.b. 8 tíma flug seinni
partinn á morgun til Orlando og er enginn annar en Þráinn Arnar með
í för en hann er einmitt á leiðinni til Daytona til að ná sér í
einhverja flugtíma.
Og eins og vanalega ætla ég að skella inn videoi af flugferðinni
til AEY og það koma fleirri viedo inn á myspace-ið mitt og auðvitað
linkur á myndir úr ferðinni hér á síðunni..
Landing At Akureyri
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|